Svampur Sveinsson

Loksins náði ég myndunum inná blessuðu tölvuna. Hún hefur verið með einhver leiðindi þessi elska og ekki leyft mér að hlaða inn myndum. En þetta hafðist svo loks get ég sýnt gróflega hvernig ég gerði Svamp Sveinsson.

Hafa ber í huga að þetta er í fyrsta skiptið sem ég reyni að festa ferlið á filmu og sé eftirá að ég hefði átt að taka fleirri myndir ;)

Hér er ég búin að setja tvo botna aaf súkkulaðiköku með smjörkremi á milli og utanum og klæða svo með sykurmassa. Ég notaði ferkanntað mót en það er vel hægt að nota hvaða mót sem er og skera svo kökuna til. Ég ákvað að hafa hana hvíta og spreyja hana svo gula (kemur dekkri og flottari litur með því). Það er ferlega einfalt að lita massann gulan með matarlit og klæða kökuna með gulum massa.

IMG_2257














Hér er ég búin að nota kúluáhald og setja nokkrar holur á Svamp :)

IMG_2259














Ég spreyjaði timburplötu sem ég var búin að klæða með sykurmassa. Það er ekkert mál að nota bara hvítan kökubakka eða kökudisk. Nafnið stakk ég í sykurmassann áður en ég spreyjaði. Ferlega töff hvernig það kemur út :)

IMG_2266














Hér er ég búin að spreyja kökuna gula og setja hana á "plötuna". Passa þarf að staðsetja Svamp á réttan stað uppá fætur og handleggi. 

IMG_2267














Nefið á hann gerði ég daginn áður. Ég mótaði ca eins og ég held að nefið á honum er miðað við myndir sem ég fann á netinu. Reyndi að hafa þa ðí réttu hlutfalli og setti það á tannstöngul. Lét það þorna yfir nótt svo það væri hægt að stinga því bara í kökuna :) 
Ég notaði gum paste hráefni í nefið en það er vel hægt að gera það úr sykurmassa.

IMG_2263



















Ég teiknaði (dró í gegn) andlitiið, fötun, fætur og hendur til að nota til viðmiðunar. Ég teiknaði það ca í þeirri stærð sem kakan er. Augun sker ég svo út úr hvítum sykurmassa.

IMG_2271














Hér er ég búin að staðsetja og festa augun á kökuna. Ég lagði teikninguna ofaná kökuna og teiknaði útlínurnar á augunum og munninum. Munnurinn var bara málaður á með matarlit. Svo gerði ég litlar bláar kúlur og flatti út í augun og málaði svo svarta augasteina. Ég skar svo tennurnar út eftir teikningunni og festi þær á kökuna. Hægt er að nota vatn eða sérstakt kökulím til að festa allt á kökuna

IMG_2273



















Hér er ég búin að setja hvítt á Svamp fyrir skyrtuna. Ég notaði teikninguna til að fá ca línurnar á skyrtunni og merkti á kökuna hvar þetta átti að koma eftir teikningunni. Það sama gerði ég með buxurnar hans. Ég hnoðaði brúnan matarlit í sykurmassann til að fá hann brúnann :) Ég stillti honum á kökuna og skar hann til á honum frekar en að skera út allt og setja svo á kökuna þar sem það getur endað illa ef massinn er svo ekki í réttri stærð.


IMG_2274














Hér er ég búin að móta hendurnar á honum. Ég tók ekki almennilegar myndir af því. Klikkaði á því. Var algjörlega in the zone og steingleymdi myndavélinni ;)


IMG_2275



















Hér er svo kakan tilbúin. Ég viðurkenni að það vantar slatta í ferlið en þetta kemur vonandi með tímanum ;)


IMG_2288



















IMG_2286














Hér er stutt videó sem ég og sonur minn prufuðum að gera ;) Þarna er ég að móta skó á Svamp Sveinsson og svona er flest allt unnið sem ég set á kökurnar eftir tilfinningu ;)




Þetta var bara kvöldmaturinn að afþiðna á borðinu sem sést í ;)

Verði ykkur að góðu og endilega skellið inn spurningum eða kommentum ef þið viljið :)

Kv Anna

Fimmtudags

Ég elska að skoða kökumyndir, síður með leiðbeiningum, hvernig eigi að skreyta kökur og líka youtube myndbönd :) 
Hér er ein hrikalega flott facebook síða með einföldum og flottum leiðbeiningum:

https://www.facebook.com/decoreCake?fref=ts

Ég er að vinna í því að setja inn nokkrar myndir og leiðbeiningar tengt þessari köku:

svampur


















Set inn færslu þegar það verður klárt :)

 


Airbrush

Ég keypti mér fyrir einhverju síðan airbrush græjur til að spreyja kökur og sé sko ekki eftir því. Það eru endalausir möguleikar með þessari græju. Eftir að hafa googlað og youtub-að heilan helling um airbrush á kökur þá prufaði ég að leggja blúndu ofaná og spreyja og þetta var útkoman:

Picture 268














 

Picture 276

 










Ég verð bara að segja að ég var rosalega ánægð með kökuna ;)

Hér er linkur á eitt eirbrush myndband af youtube

 

http://www.youtube.com/watch?v=it2VI6FXgLo


Næst á dagskrá :)

Næstu helgi ætla ég að skella í eina skírnartertu og eina mínu mús köku sem verður afmæliskaka og skírnarterta.
Ég ætla að taka myndir af því hvernig ég geri þetta og sýna hversu einfalt þetta getur verið.

Hér er mynd af einni skírnartertu sem ég gerði í desember síðastliðnum.

Picture 230














Kökur

Hver elskar ekki kökur?? Og ekki er verra ef maður getur borðað góða köku sem er líka flott.
Ég hef mjög mikinn áhuga á kökuskreytingum og bakstri. En þó aðallega skreytingum ;) 
Ég á góða vini og vandamenn sem leyfa mér að skreyta kökur við öll tækifæri.

Ég var að spá í að skella hér inn leiðbeiningum og myndum af því hvernig hægt er að skreyta kökur bæði einfalt og flókið :)

Picture 024


















Þetta er brúðarterta sem ég gerði í desember. Ég spreyjaði kökuna til að ná þessum dökka fjólubláa lit og notaði blúndu til að fá munstrið á miðhæðinni :)

Um leið og ég skelli í köku þá set ég inn myndir og leiðbeiningar hvernig ég geri þetta :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband